Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #006 -- Vetrarhátíð í Reykjavík
February 21, 2007
-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríið Skólavörðustíg 1A.




Ný Málverk

Kjartan Guðjónsson og Sigurður Örlygsson - 23. febrúar - 10. mars

Í tilefni Vetrarhátíðar í Reykjavík og Safnanætur opna Kjartan Guðjónsson og Sigurður Örlygsson sýningu í galleríinu Art-Iceland.com Skólavörðustíg 1a þann 23. febrúar frá kl. 19 - 21. Þér er boðið að líta við og þiggja heitt kakó í kuldanum.

Sýningin stendur yfir til 10. mars og er opin frá 12-16 á laugardögum og frá kl. 12-18 á virkum dögum.

Kjartan Guðjónsson er álitinn einn af bestu núlifandi málurum á Íslandi í dag. Kjartan nam list, fyrst á Íslandi en síðar í Art Institute of Chicago og síðar í Accaemia di Belle Arti í Flórens.

Kjartan hefur verið áhrifamikill í Íslensku listalífi í meira en hálfa öld! Hann var einn af málurunum sem voru þekktir sem Septem-hópurinn og héldu fyrstu sýningu sína saman árið 1947.

Kjartan var kennari í Myndlistarskóla Reykjavíkur í meira en 25 ár.

Kjartan Guðjónsson hefur haldið fjölmargar sýningar, bæði einn og með öðrum. Hann er líka þekktur fyrir verk sín á sviði hönnunar og myndskreytingar.

Þrátt fyrir að árin séu orðin mörg er Kjartan enn hugmyndaríkur og málar kraftmiklar og áhrifaríkar myndir.


Sigurður Örlygsson er málari með skýra sýn og sterka tilfinningu fyrir myndbyggingu og formum.

Sigurður Örlygsson er fæddur í Reykavík 1946. Hann varð snemma fyrir áhrifum af listum þar sem faðir hans var líka listmálari.

Sigurður nam í fjögur ár við Myndlista- og handíðaskólann. Hann útskrifaðist með kennararéttindi í teikningu. Síðar hélt hann til Kaupmannahafnar og lærði þar í eitt ár við Listaakademíuna. Sigurður lagði líka stund á listnám í Art Students League í New York

Í upphafi voru málvek Sigurðar í óhlutbundnum verkum en hann hefur þróað stíl sinn í átt að fantasíu og tilraunum með neyslusamfélag nútímans.

Myndröðin sem sýnd er á þessari síðu er úr athugunum hans á urgangi neyslusamfélagsins. Tæknin er blanda af ljósmyndun, málverki og þrívíðum skúlptúrum. Sigurður notar hluti sem enginn annar sér not fyrir, umbreytir þeim og nýtir til þess að búa til ný form og nýja sköpun.

Sigurður varði síðasta ári á Indlandi og þaðan kemur ein mynd á þessari síðu.

Sigurður Örlygsson er um þessar mundir að vinna að hugmyndinni um upphaflegu náttúrulegu frumefnin. Hann segir að málverk sín séu annað hvor lítil eða gríðarlega stór!

Allt frá árinu 1971 hefur Sigurður haldið fjölmargar sýningar bæði á Íslandi jafnt sem erlendis.

Við bendum þér á vefinn www.Art-Iceland.com til að skoða verk listamannana nánar.



Álfar í mannheimum

Álfheiður Ólafsdóttir sýnir olíumyndir á Thorvaldsen Bar Austurstræti 8-10. - 17. febrúar -31 mars.

Álfheiður Ólafsdóttir fær kraft sinn og orku frá íslenskri náttúru og er það hugarfarið og utanaðkomandi áhrif hverju sinni sem leiða hana áfram í listsköpun hennar. Álfheiði tekst að opna flóðgáttir tilfinninga og færa yfir á léreftið í óheftu litaflæði. Með verkum sínum nær hún þannig beinu sambandi við þá sem njóta.

Álfheiður hefur haldið fjölmargar einkasýningar og samsýningar. Auk þess hefur hún gefið út barnabók þar sem hún er bæði höfundur texta og mynda. Bókin heitir "Grímur og sækýrnar" og er gefin út árið 2000.

Í dag rekur Álfheiður galleríið Art-Iceland.com Skólavörðustíg 1a sem er tengt vefnum www.Art-Iceland.com ásamt því að sinna listinni.

Einkasýningar:

2005 - Saltfisksetrið - Grindavík
2002 - Kaffi Langbrók - Fljótshlíð
2000 - Gerðuberg - Reykjavík
1998 - Listakot - Reykjavík

Samsýningar:

2006 - Mublan - Kópavogi
2005 - Nato Base - Keflavík
2005 - Vor undir jökli - Hellnum, Snæfellsnesi
2005 - List án landamæra - Reykavík
2005 - ReMax - Reykjavík
2002 - Gallerý Nr. 5 - Reykjavík



Dýrið í mér

Svandís Egilsdóttir sýnir í Kartöflugeymslunni í Ártúnsbrekku.

Svandís Egilsdóttir sýnir í Kartöflugeymslunni  í Ártúnsbrekku.

Svandís er ein af 6 listamönnum sem búsettir eru á Héraði og hefur hver og einn listamaður unnið að sérstöku verki sem túlkar titil sýningarinnar. Verkin á sýningunni eru margvísleg, málverk, innsetningar og ljósmyndir.

Svandís Egilsdóttir er ein þeirra skemmtilegu listamanna sem lætur hjartað ráða ferðinni í myndsköpun sinni. Hvar sem hún er niðurkomin skiptir hana mestu máli að vera hún sjálf og þá streyma listaverk frá henni eins og af sjálfu sér.

 

Nýjar greinar á Art-Iceland.com:

Myndlistarsýning í Miðstöð símenntunar
Galleríið Art-Iceland opnaði myndlistarsýningu í samstarfi við Miðstöð Símenntunar Hafnarfirði laugardaginn 3ja febrúar. Sýningin hófst með opnun að Skólabraut 1, þar sem Lækjarskóli var áður til húsa. Myndverk tíu listamanna eru sýnd.


Íslensk List - Ljós og Lifandi

Skólavörðustíg 1A

562 2890 / 698 2919

Back to Back Issues Page