Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #012 -- Senin Arenz - Kyrrð
September 20, 2007
-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríið Skólavörðustíg 1A.




Senin Arenz - Kyrrð

Sýning á málverkum í Art-Iceland 22-28. sept.
 

 Senin Arenz - olía á striga
 

Senin Arenz opnar sýninguna Kyrrð næstkomandi laugardag 22. okt. Sýningin stendur til 28. okt. 

Senin Arenz er frá Þýskalandi, hún er ein af þeim erlendu ferðamönnum sem hafa heillast af landi og þjóð og ákveðið að setjast hér að.  Senin Arenz hefur sýnt víða í Þýskalandi, en þessi einkasýning hennar Senin er önnur í röðinni hérlendis.

Senin dvelur löngum stundum úti í náttúrinni og hlustar á þögnina.  Hugmyndin af heiti sýningarinnar er sprottin í "kyrrð" náttúrunnar þar sem fegurðin og þögnin ríkir.

Senin kom til landsins árið 2005 og eins og hún orðar það "mér finnst vænt um Ísland, litina sem eru ríkjandi hér, kyrrðina, birtuna og fegurðina"

Ljósmyndir teknar af Senin Arenz af friðsælli íslenskri kyrrð.  Sjá hér:  www.art-iceland.com/senin-arenz-syn-art-icl-.html

Sjá nánar um Senin Arenz hér:  www.art-iceland.com/senin-arenz_isl.html

 

Englar, boðberar ljóssins


 

Englateikning eftir Senin Arenz

Senin Arenz teiknar engla fyrir gesti á meðan á sýningunni stendur.  Senin finnur engilinn þinn og málar hann fyrir þig. Hún færir þér skilaboð frá honum og skrifar skilaboðin á myndina.

Uppgötvaðu engilinn þinn, hæfileika þína og hvernig þú getur nýtt þá til frekari þroska og jákvæðara lífs.

Myndir sem eru málaðar sérstaklega fyrir þig.  Gjöf til þín... eða einhvers annars sem þér þykir vænt um... til dæmis verndarenglar fyrir börn.

Ekki er nauðsynlegt að Senin hitti þann sem hún er að teikna engil fyrir.  Þú þarft einungis að vera opinn fyrir þeim skilaboðum sem engillinn gefur.

Senin teiknar engla fyrir fólk frá kl. 12-14 fyrir opnun sýningarinnar.

www.Art-Iceland tekur við pöntunum á englamyndum.  Ef þú átt erfitt með að komast frá eða býrð úti á landi.  Það er ekki nauðsynlegt fyrir Senin að hitta fólkið sem hún er að teikna fyrir.  Hún þarf einungis nafn, fæðingardag og ár.  Einnig teiknar hún verndarengla fyrir börn.

Sjá pöntunarform fyrir englateikningar hér:  www.art-iceland.com/englateikning.html

 

Charlotta S. Sverrisdóttir

Sýnir olíumálverk í Art-Iceland frá 5. okt. - 19. okt.

Art-Iceland mun fjalla nánar um sýninguna þegar nær dregur.  Sjá nánar um Charlottu hér:

www.art-iceland.com/charlotta-s-isl.html

 

Nýjar greinar á Art-Iceland.com

Englateikning
Senin Arenz finnur engilinn þinn og málar hann fyrir þig. Hún færir þér skilaboð frá honum og skrifar skilaboðin á myndina. Uppgötvaðu engilinn þinn, hæfileika þína og hvernig þú getur nýtt þá til frekari þroska og jákvæðara lífs.

 


Listaverkalán

Þig dreymir sjálfsagt um að eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk.

Listaverkalán er frábær kostur sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og listmuni sem galleríið býður upp á.

Lánveitingin er í samvinnu Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð. Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur.

Þessi þjónusta er vel þegin og vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.

Sjá nánar hér.



Íslensk List - Ljós og Lifandi

Skólavörðustíg 1A

562 2890 / 698 2919

Back to Back Issues Page