-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------
Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríið Skólavörðustíg 1A.
Charlotta - Fletir
Sýning á málverkum í Art-Iceland
5 - 19. október 2007

Snæfellsjökull, Charlotta Sverrisdóttir - Olía á striga, 150x100
cm.
Charlotta Sverrisdóttir
opnar sína fjórðu einkasýningu föstudaginn 5. október í galleríinu Art-Iceland
að Skólavörustíg 1 1a.
Charlotta sýnir afrakstur vinnu sinnar eftir námið í sumar.
Þar sem hún var í Master class tímum hjá Bjarna Sigurbjörnssyni.
Enn sem fyrr spila sterkir litir aðalhlutverkin í myndunum. Hún
notar hreina liti og hliðstæða ásamt andstæðum litum í verkin.
Hún byrjaði að hugsa verkefnin út frá landslaginu en tók svo að
einfalda flötinn þannig að eftir standa fletir en þó gægist
landslagið í gegn.
Þannig varð t.d. fyrsta myndin - Snæfellsjökull, sem er hér fyrir
ofan síðust í ferlinu.
Sýningin stendur yfir í
tvær vikur og mun Charlotta vera við vinnu sína í galleríinu báða sunnudagana
þann 7. og 14. október frá kl. 14 - 16.
Opnunartími Art-Iceland er 12-18 virka daga og 12-16
laugardaga.
www.art-iceland.com/charlotta-s-isl.html
Veturinn 2000-2001 stundaði
hún nám í Fine Arts, þ.e.a.s. vatnslitun, olíumálun, teikningu, portrait,
modelteikningu og listasögu í myndlistadeildinni í Long Beach City College í
Californíu og lauk því með hæstu einkunn eða:
“Dean´s high honor
student”.
Andrúmsloftið og litagleðin
í Californíu heillaði hana mikið og kemur það einkum fram í sterkum litum sem
hún heillast mjög af og einkennir mikið verk hennar.
Síðast liðin 6 ár hefur hún
stundað nám við olíumálun við Myndlistaskóla Kópavogs undir leiðsögn Margrétar
Jónsdóttur listmálara og Bjarna Sigurbjörnssonar og tók þátt í Master class
tímum hjá honum sl. sumar.
Auk þess hefur hún tekið þátt í samsýningu í Huntington Beach Art Center í
Huntington Beach, Californíu, vorið 2001 og í tveimur samsýningum á vegum
Art-Iceland síðasliðinn vetur.
Ágúst Bjarnason
"Segðu í breiðar byggðir"
Sýning á Thorvaldsen Bar í október.

Rauði þráðurinn - Ágúst Bjarnason - Dúkrista og vatnslitur
Ágúst Bjarnason sýnir á Thorvaldsen Bar í
október á vegum Art-Iceland. Fyrirsögnin er tilvísun til miðbæjar
Reykjavíkur. Ágúst sýnir dúkristur og vatnslitamyndir sem gefur
skemmtilega stemningu á Thorvaldsen. Hér sjáum við margra ára vinnu við
skissugerð, dúkristu og vatnslitun.
Ágúst Bjarnason er fæddur í Reykavík 1956. Hann ólst upp
í Kópavoginum, en flutti aftur til Reykjavíkur á unglingsárunum og hefur búið
þar síðan, með nokkurra ára viðkomu í Stokkhólmi.
Ágúst stundaði nám við Myndlista-og handíðaskólann og
útskrifaðist þaðan úr grafíkdeild árið 1986. Í Stokkhólmi stundaði hann nám í
listasögu við háskólann og hér heima hefur hann sótt kúrsa í heimspeki og
miðaldabókmenntum við Háskóla Íslands.
Ágúst hefur unnið að list sinni allar götur síðan 1980 og hefur
komið víða við. Má þar nefna teikningar, koparætingu, vatnslitamálun og nú
síðustu ár dúkristur. Einnig hefur hann myndskreytt nokkrar bækur, hannað
bókarkápur og komið við sögu við gerð "storyboard"-verkefna í kvikmyndagerð.
Meginviðfangsefni hans hefur verið Reykjavíkurborg og umhverfi hennar, fólk og
sjómennska.
Ágúst hefur haldið nokkrar einkasýningar og tekið þátt í
samsýningum, bæði hérlendis og erlendis. Hann er meðlimur í Sambandi íslenskra
myndlistarmanna (SÍM).
Sjá nánar hér:
www.art-iceland.com/agust-bjarnason-isl.html
www.art-iceland.com/stikad-upp-skolavordustiginn.html
Álfheiður Ólafsdóttir - Líf framundan
"Farandsýningin" Líf framundan verður sett upp í galleríinu Art-Iceland
í lok október.
Nánar verður fjallað um Líf framundan í næsta fréttabréfi,
þegar nær dregur.
Nýjar greinar á Art-Iceland.com
Charlotta - Fletir í Art-Iceland
Charlotta sýnir afrakstur vinnu sinnar eftir námið í sumar. Þar sem hún var í
Master class tímum hjá Bjarna Sigurbjörnssyni. Enn sem fyrr spila sterkir litir
aðalhlutverkin í myndunum. Hún notar hreina liti og hliðstæða ásamt andstæðum
litum í verkin.
Bjartur
sýnir í Art Iceland
Eyjólfur Bjartur Eyjólfsson opnaði sýningu á teikningum og akrílmyndum þann 15.
september kl. 14 - 16. í Art-Iceland Skólavörðustíg 1a.
Listaverkalán
Þig dreymir sjálfsagt um að
eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á
listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk.
Listaverkalán er frábær kostur
sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og
listmuni sem galleríið býður upp á.
Lánveitingin er í samvinnu
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og
listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð.
Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn
endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg
ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur.
Þessi þjónusta er vel þegin og
vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við
vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.
Sjá nánar hér.