Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #015 -- Bergur Thorberg - Biðhetjur - Biðenglar
November 30, 2007
-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríið Skólavörðustíg 1A.




Bergur Thorberg

"Biðhetjur – Biðenglar"

Sýning í Art-Iceland 1. desember 2007

 

Bergur Thorberg  - Biðhetjur - Biðenglar

Bergur Thorberg opnar sýningu á kaffiverkum sínum laugardaginn 1. desember kl.14.00 í Art Iceland Skólavörðustíg 1a.  Sýninguna nefnir Bergur "Biðhetjur-Biðenglar". Viðfangsefni Bergs að þessu sinni er biðin.  Eftir hverju erum við að bíða? Erum við að bíða eftir að verða hetjur eða englar? Eða eitthvað allt annað?  Hvernig verjum við biðtíma okkar?  Er líf okkar í bið?  Hvað bíður okkar að morgni?  

Bergur hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum á Íslandi og víðsvegar í Evrópu og Ameríku. Hann notar kaffi í verkum sínum og vinnuferlið er sérstakt að því leyti að verkin eru unnin á hvolfi og þegar Bergur teiknar upp verkin sín, snertir hann aldrei flötinn sem hann vinnur á hverju sinni. Listamaðurinn verður sjálfur á staðnum og sýnir hvernig hann vinnur verkin. Allir eru boðnir velkomnir á opnun.

Opnunartími Art-Iceland

Virka daga: 12–18

Laugardaga: 12-16


Listaverkalán

Þig dreymir sjálfsagt um að eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk.

Listaverkalán er frábær kostur sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og listmuni sem galleríið býður upp á.

Lánveitingin er í samvinnu Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð. Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur.

Þessi þjónusta er vel þegin og vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.

Sjá nánar hér.



Íslensk List - Ljós og Lifandi

Skólavörðustíg 1A

562 2890 / 698 2919

Back to Back Issues Page