| Back to Back Issues Page |
![]() |
|
Art-Iceland Fréttabréf #018 -- Guðný Svava - Eldur, ís og ævintýri April 18, 2008 |
-----------------------------------------------
í Geysi, Bistro Bar, Aðalstræti 2. Sýningin stendur til 15. maí og er opin alla daga frá klukkan 11.30 til kl. 22.00 Guðný Svava vinnur með hlýnun jarðar á sýningunni og lýsir hugmyndum sínum á eftirfarandi hátt: "Náttúran tekur sífelldum breytingum. Á okkar dögum er hlýnun jarðar orðin staðreynd jöklar munu bráðna og hverfa með tímanum og ásýnd jarðar verður líklega allt önnur eftir nokkrar aldir. "Náttúran er síbreytileg, ný lönd geta risið úr sæ og tekið þátt í mótun nýs landslags í hinu síbreytilega ævíntýri jarðarinnar" Guðný Svava hefur haldið fjölda einkasýninga og samsýninga. Hún hefur einnig unnið mikið í hönnun og myndskreytingum fyrir Lesbók Morgunblaðsins og fleiri blöð.
Verðlaun fyrir myndlist frá Sameinuðu þjóðunum, Japan 1959
ListaverkalánÞig dreymir sjálfsagt um að eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk. Listaverkalán er frábær kostur sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og listmuni sem galleríið býður upp á. Lánveitingin er í samvinnu Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð. Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur. Þessi þjónusta er vel þegin og vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.
Íslensk List - Ljós og Lifandi698 2919
|
| Back to Back Issues Page |