Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #019 -- Álfheiður - Vorganga
April 30, 2008

-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com



Álfheiður Ólafsdóttir
Sýnir í Norm X Auðbrekku 6 Kópavogi.
 


Vorganga, olía á striga (95 x 150 cm) Álfheiður Ólafsdóttir.


Álfheiður Ólafsdóttir
opnar sýningu þann 1. maí 2008 Kl. 14:00 - 17:00  í Norm X Auðbrekku 6 Kópavogi.  Álfheiður er með vinnustofu í sama húsi og eru listamenn í Auðbrekku 6 sem sjá um að setja upp sýningar í verslunarhúsnæði Norm X.
Jafnframt verður Álfheiður með opna vinnustofu á Kópavogsdögum þann 3 og 4 maí.

Sýningin ber titilinn Vorganga sem er einkar viðeigandi á þessum árstíma. Vorganga er unnin eftir samnefndu ljóði eftir Jón Ólafsson.


Vorganga

Er á rölti um mel og móa mikið á ég gott
söng í eyrum lætur lóa lifnar gamalt glott
fuglarnir um flóa syngja fagurt lifnar vor
þannig vil ég andann yngja eflist við hvert spor.

Andinn svífur gáfur gefast er ég geng um engi lengi beðið eftir því
beðið eftir þér.

Niður brekkur lækir líða liðast eins og skott
lögmálinu ljúfir hlíða líðst ei höfgadott
gutli vatn í gúmmískónum gerir ekkert til
er í sokk af ömmu prjónum ágætum með yl.

Nú er vorið gengið inn í garðinn græni blærinn kominn allt í kringum mig
kring um mig og þig.

Allt er nú í góðum gangi gæfan mér við hlið
finnst mér eins og lækinn langi að leika fossanið
gott er þegar ganga vorsins gefur sálarfrið
lifnar foldar frjó til lífsins faðmar sólskinið.

Hæðir birtast grundir gróa þá er gaman úti að gleðjast ein og leika sér
leika sér með þér.

Jón Ólafsson.



 


Listaverkalán

Þig dreymir sjálfsagt um að eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk.

Listaverkalán er frábær kostur sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og listmuni sem galleríið býður upp á.

Lánveitingin er í samvinnu Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð. Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur.

Þessi þjónusta er vel þegin og vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.

Sjá nánar hér.



Íslensk List - Ljós og Lifandi

698 2919

Back to Back Issues Page