Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #022 -- Vorganga í Saltfisksetrinu
July 10, 2008

-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com



Vorganga í Saltfisksetrinu Hafnargötu 12a Grindavík


Anna Sigríður Sigurjónsdóttir

Viðfangsefnið hennar er að manneskjan staldri við og gefi sér tíma til að vera til og velta því fyrir sér í hverju það felst.
 


Samhugur, olía á striga, Álfheiður Ólafsdóttir

Sýningin Vorganga er unnin eftir samnefndu ljóði eftir bróður hennar Jón Ólafsson. Sýningin er til minningar um hennar trygga bróður, en hann lést 24. júní s.l., á Jónsmessunótt. Fráfall Nonna bróður er henni mikill missir og lýsa myndirnar þeim tilfinningum sem þau systkinin fóru í gegnum, í erfiðum veikindum hans.

Verið velkomin á opnun í Saltfisksetrinu Grindavík, þann 12. júlí kl. 14:00 - 18:00  Sýningin stendur til 11. ágúst og er opin daglega frá kl. 11:00 - 18:00.

 

Vorganga

Er á rölti; um mel og móa, mikið á ég gott,
söng í eyrum lætur lóa, lifnar gamalt glott.
Fuglarnir um flóa syngja, fagurt lifnar vor.
þannig vil ég andann yngja, eflist við hvert spor.

Andinn svífur, gáfur gefast,
ef ég geng um engi,
lengi, beðið eftir því,
beðið eftir þér.

Niður brekkur lækir líða, liðast eins og skott.
Lögmálinu ljúfir hlýða, líðst ei höfgadott.
Gutli vatn í gúmmískónum gerir ekkert til.
Er í sokk af ömmuprjónum, ágætum með yl.

Nú er vorið, gengið inn í garðinn,
græni, blærinn
kominn allt í kringum mig,
kringum mig og þig.

Allt er nú í góðum gangi, gæfan mér við hlið.
Finnst mér eins og lækinn langi’ að leika fossanið.
Gott er þegar ganga vorsins gefur sálarfrið,
lifnar foldar frjó til lífsins, faðmar sólskinið.

Hæðir birtast, grundir gróa,
Þá er gaman úti’ að gleðjast
einn og leika sér,
leika sér með þér.

Texti: Jón Ólafsson - Lag: Jens Sigurðsson
 


Listaverkalán

Þig dreymir sjálfsagt um að eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk.

Listaverkalán er frábær kostur sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og listmuni sem galleríið býður upp á.

Lánveitingin er í samvinnu Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð. Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur.

Þessi þjónusta er vel þegin og vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.

Sjá nánar hér.



Íslensk List - Ljós og Lifandi

698 2919

Back to Back Issues Page