-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------
Art-Iceland.com
Ryðland á Thorvaldsen Bar Austurstræti 8
Ryðland - Jóhann Jónsson Listó

Jóhann er fæddur 1948 og hefur fengist við hvers konar myndlist
frá því um tvítugsaldur, lengi vel með fullri vinnu en frá árinu 1986 nær
alfarið unnið við margvísleg myndlistarform, lengi vel fékkst hann við svokallað
ofurraunsæi með vatnslitum, og einnig starfað við teiknun, grafíska hönnun og nú
tölvubreytt ljósmyndaverk.
Jóhann, sem er að mestu leiti sjálfmenntaður listamaður hefur haldið átta
einkasýningar þar af eina erlendis, í Svíþjóð árið 1990, einnig tekið þátt í
mörgum samsýningum. Verk eftir Jóhann eru víða til í einkaeigu og í opinberum
söfnum hér á landi og erlendis.
Þessi sýning sem Jóhann kallar “Ryðland” eru 15 verk sem eru allt frá því að
vera lítið breyttar ljósmyndir til mjög mikið tölvubreyttra myndverka, sem eru
það sem Jóhann kallar “stafræna efnafræði”
Dæmi um þetta eru myndir sem upphaflega eru teknar af sakleysislegum litlum
vatnspollum í ryðguðum trollhlerum hafa breyst í gjósandi hraunsprungur. Þess má
einnig geta að sumar myndanna urðu til eftir margra vikna, jafnvel margra mánaða
undirbúning og bið eftir “rétta” augnablikinu. Skipti þá mestu máli
birtuskilyrði og aðstæður í veðurfari við myndatökuna sjálfa, einnig og ekki
síður hvernig tíðarfarið var vikurnar og jafnvel mánuðina á undan.
Allar myndirnar eru til sölu og þær myndir sem seljast á sýningunni verða ekki
prentaðar aftur.
Listaverkalán
Þig dreymir sjálfsagt um að
eignast listaverk. Art-Iceland.com býður nú hagstæð listaverkalán til kaupa á
listaverkum og auðveldar þér þar með að eignast fallegt listaverk.
Listaverkalán er frábær kostur
sem listunnendur geta notfært sér. Hægt er að kaupa hvers konar listaverk og
listmuni sem galleríið býður upp á.
Lánveitingin er í samvinnu
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og
listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóð.
Það fer eftir því hve vinsælt er að nýta sér þjónustuna hve lengi potturinn
endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, þar sem SPRON og Reykjavíkurborg
ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiða vextina fyrir kaupendur.
Þessi þjónusta er vel þegin og
vonum við að sem flestir notfæri sér þessi góðu kjör á meðan það er hægt. Við
vitum ekki hvað potturinn endist lengi svo vinsæl hafa lánin verið til þessa.
Sjá nánar hér.

Íslensk List - Ljós og Lifandi
698 2919
