Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #003 -- List hjartans
November 23, 2006
-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning with this issue of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríið Skólavörðustíg 1A.




List hjartans - Sýning

Gunnar S. Magnússon og Álfheiður Ólafsdóttir opna sýningu í galleríinu Art-Iceland.com Skólavörðustíg 1a þann 25. nóvember frá kl. 12.00 -14:00 Sýningin stendur yfir til 9. desember og er opin frá 12.00-16.00 á laugardögum og frá kl. 12.00-18.00 á virkum dögum.



Gunnar S. Magnússon sýnir portrait teikningar sem eru unnar í kring um 1950 - 2000. Við hjá Art-Iceland.com köllum verkin hans list hjartans. Einlægni og hjartagæska í lífi og list. Það þarf mikinn kjark til að vera einlægur í samskiptum við aðra og fylgja sannfæringu sinni. En það borgar sig og við stöndum sterkari á eftir. Lífsreynsla fólks gerir okkur að þeim manneskjum sem við erum.



Álfheiður Ólafsdóttir fær kraft sinn og orku frá íslenskri náttúru og er það hugarfarið og utanaðkomandi áhrif hverju sinni sem leiða hana áfram í listsköpun hennar. Álfheiði tekst að opna flóðgáttir tilfinninga og færa yfir á léreftið í óheftu litaflæði. Með verkum sínum nær hún þannig beinu sambandi við þá sem njóta.

Við bendum fólki á vefinn www.Art-Iceland.com til að skoða verk þeirra Álfheiðar og Gunnars nánar.

Samsýning Gunnars og Álfheiðar er þáttur í breyttum áherslum gallerísins. Art-Iceland.com. Verða fleiri áhugaverðar sýningar bæði einstakra listamanna auk samsýninga. Á mánudeginum þann 11. desember opnum við smámyndasýningu. Þar verður gott úrval smærri verka sem eru skemmtileg í jólapakkann. Listamennirnir og Art-Iceland.com gefa 10% af allri sölu yfir hátíðarnar til góðgerðarmála.


Vonumst til að sjá sem flesta laugardaginn 25. nóvember.

Álfheiður og Gunnar



Bestu kveðjur,
Álfheiður Ólafsdóttir
Þrándur Arnþórsson


Art-Iceland.com
Skólavörðustíg 1A
562 2890
Back to Back Issues Page