Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #005 -- Sýning í Miðstöð símenntunar
January 30, 2007
-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríið Skólavörðustíg 1A.




Listasýning í Miðstöð símenntunar í Hafnarfirði

Laugardaginn 3. febrúar 2007

Galleríið Art-Iceland opnar myndlistarsýningu í samstarfi við Miðstöð Símenntunar Hafnarfirði. Sýningin hefst með opnun að Skólabraut 1, þar sem Lækjarskóli var áður til húsa. Opnunin stendur frá klukkan 14:00-16:00 myndverk tíu listamanna verða sýnd. Í tilefni opnunarinnar verður tónlistarflutningur þar sem Guðrún Árný Karlsdóttir heiðrar Miðstöð Símenntunar með söng sínum og ferskt hafnfirskt tríó spilar. Með sýningunni vill Miðstöðin veita velunnurum sínum tækifæri á að kynnast hver öðrum, húsnæðinu og starfseminni.

Listamennirnar sem sýna eru eftirtaldir:

Sigurður Örlygsson – Olía á striga.
Árni Rúnar Sverrisson – Olía á striga.
Inga Dóra Guðmundsdóttir – Stafræn prent.
Ester Jóhannesdóttir – Blönduð tækni.
Helga Sigurðardóttir – Olía á striga.
Kristín Pálmadóttir – Grafíkverk.
Svandís Egilsdóttir – Olía á striga.
Charlotta S. Sverrisdóttir – Olía á striga.
Ágúst Bjarnason – Teikningar.
Kristbergur Pétursson – Olía á striga.

Við hjá Art-Iceland.com leggjum metnað í að kynna listamennina okkar með skemmtilegum uppákomum í galleríinu ásamt einkasýningum. Einnig finnst okkur skemmtilegt að fara með listina til fólksins. Samvinnan við Miðstöð símenntunar er eitt af þeim verkefnum og er það einstaklega áhugavert því húsnæðið hefur sína sögu sem glæðir listina lífi meira en margt annað.

Listamennirnir eru með verk til sýnis á vefnum: www.Art-Iceland.com
Einnig í galleríinu á Skólavörðustíg 1a. Opnunartími gallerísins er frá kl.12:00 – 18:00 virka daga og 12:00 – 16:00 á laugardögum.

Nýjar greinar á Art-Iceland.com

Fagurt jólaævintýri - Hafdís Jónsdóttir
Þegar líður að jólum er gaman að vera til. Þá má sleppa af sér hendinni og fara á flug ævintýranna. Það er hægt með ýmsu móti. Haddý eins og flestir kalla hana býr til heilt ævintýri fyrir jólin.

Guðbergur Auðunsson - "Design on Ice"
Guðbergur sendi okkur hjá Art-Iceland.com myndir sem eru teknar 16.nóvember 2006 á opnun sýningarinnar "Design on Ice" þar sem frönsk nútímahönnun mætir íslenskri myndlist.

Með tyggjó og túberað hár
Ljósmyndasýning með bítli og sveiflu opnuð í Þjóðminjasafninu. Hvert tímabil hefur sinn blæ og stíl. Um þessar mundir rifjar Þjóðminjasafnið upp stemningu sjöunda áratugarins eins og hún birtist okkur í myndum tvíburabræðranna Ingimundar og Kristjáns Magnússona.

Smámyndasýning - "Tvær í einu höggi" - Jólin 2006
Laugardaginn 9. desember opnaði smámyndasýning í Art-Iceland.com á Skólavörðustíg 1a. Sýning Gunnars S. Magnússonar og Álfheiðar Ólafsdóttur "List hjartans" lauk og við tók smámyndasýning. Sýndar eru fjölmargar nýjar smámyndir eftir listamennina sem eru í galleríinu Art-Iceland.com. Smámyndasýningin stendur yfir til 15. janúar 2007.

Jólafjör - Tónlist: Hjónabandið
Hjónabandið hefur starfað saman í u.þ.b.10 ár með hléum. Það er skipað tvennum hjónum, þeim Ingibjörgu Elfu Sigurðardóttur og Jóni Ólafssyni og Auði Friðgerði Halldórsdóttur og Jens Sigurðssyni. Heimavöllur Hjónabandsins er á Kaffi Langbrók í Fljótshlíð þar sem oft er hægt að heyra bandið spila.

Frétt frá Barnaheill.is

Listamenn og Art-Iceland.com afhenda Barnaheillum styrk

Styrkur Art-Iceland.com afhentur: María Skúladóttir, markaðsstjóri Barnaheilla, Álfheiður Ólafsdóttir og Þrándur Arnþórsson, eigendur Art-Iceland.com.

Listagalleríið Art-Iceland.com hefur afhent Barnaheillum fjárhæð sem safnaðist við sölu listaverka á smámyndasýningu sem staðið hefur yfir í galleríinu undanfarnar vikur. Sýningunni lauk 15. janúar sl. og gáfu listamennirnir og galleríið 10% af upphæð seldra verka. Barnaheill þakka þennan góða stuðning við starf samtakanna.


Íslensk List - Ljós og Lifandi

Skólavörðustíg 1A

562 2890 / 698 2919

Back to Back Issues Page