GSM og Álfheiður
List Hjartans
- Sýning í Art-Iceland.com -

Gunnar S. Magnússon og Álfheiður Ólafsdóttir opnuðu
sýningu í galleríinu Art-Iceland.com Skólavörðustíg 1a þann 25.
nóvember frá kl. 12.00 -14:00 Sýningin stendur yfir til 9. desember
2006.

Gunnar S. Magnússon sýnir portrait teikningar sem eru unnar á
milli 1950 - 2000. Við hjá Art-Iceland.com köllum verkin hans list
hjartans. Einlægni og hjartagæska í lífi og list. Það þarf mikinn
kjark til að vera einlægur í samskiptum við aðra og fylgja
sannfæringu sinni. En það borgar sig og við stöndum sterkari á
eftir. Lífsreynsla fólks gerir okkur að þeim manneskjum sem við
erum.

Álfheiður Ólafsdóttir fær kraft sinn og orku frá íslenskri
náttúru og er það hugarfarið og utanaðkomandi áhrif hverju sinni sem
leiða hana áfram í listsköpun hennar. Álfheiði tekst að opna
flóðgáttir tilfinninga og færa yfir á léreftið í óheftu litaflæði.
Með verkum sínum nær hún þannig beinu sambandi við þá sem njóta.

Samsýning Gunnars og Álfheiðar er þáttur í breyttum áherslum
gallerísins Art-Iceland.com. Verða fleiri áhugaverðar
sýningar bæði einstakra listamanna auk samsýninga.

Erlingur Gíslason við portrait af
sjálfum sér frá sjöunda áratugnum.

Egill Ólafsson tónlistarmaður á
spjalli við Bjarna Valtý Guðjónsson.

Karl Guðmundsson og Kjartan
Guðjónsson létu sig ekki vanta.
Við bendum þér á vefinn
Art-Iceland.com til að skoða fleiri verk þeirra Álfheiðar og Gunnars
nánar:
http://art-iceland.com/gunnar-s-magnusson-isl.html
http://art-iceland.com/alfheidur-isl.html
|