Gallerí Bláskjár á Egilsstöðum
er eina galleríið á
Austurlandi og það sérhæfir sig í að koma verkum listamanna
sem eru fæddir eða búsettir á Austurlandi, á framfæri.
Þar má finna málverk, grafíkmyndir, þrívíð verk og
vídeolist.
Tólf listamenn eru að
staðaldri (frá upphafi) en svo eru settar upp gestasýningar
og það stendur til að setja upp eina gestasýningu í hverjum
mánuði.
Þeir listamenn sem eru að
staðaldri eru Pétur Behrens, Ríkharður Valtingojer, Sólrún
Friðríksdóttir, Kristín Scheving, Íris Lind Sævarsdóttir,
Fjölnir Hlynsson, Sjöfn Eggertsdóttir, Ólöf Björk
Bragadóttir, Alma J Árnadóttir, Agnieszka Sosnowska, Helga
Unnarsdóttir og Svandís Egilsdóttir.
Ríkey Kristjánsdóttir sýnir í
gestarýminu í apríl, skemmtilega fatahönnun sína.