Back to Back Issues Page
Art-Iceland Fréttabréf #010 -- Líf Framundan - Álfheiđur Ólafsdóttir
August 09, 2007
-----------------------------------------------
A note to English readers.
Beginning by issue #3 of the Art-Iceland Newsletter it will be published only in Icelandic. The newsletter is now primarily used for exhibition announcements.
-----------------------------------------------

Art-Iceland.com
Velkomin í heimsókn til okkar í galleríiđ Skólavörđustíg 1A.




Líf Framundan - Álfheiđur Ólafsdóttir

Í Kirkjuhvoli Akranesi - laugardaginn 11. ágúst 2007 kl: 14-18

Álfheiđur Ólafsdóttir sýnir olíumálverk í Listasetrinu Kirkjuhvoli Akranesi. Kirkjuhvoll er viđ hliđina á sjúkrahúsinu á Akranesi.

Líf Framundan - Álfheiđur Ólafsdóttir

Sýningin Líf framundan er framhald af sýningunni Álfar og tröll sem var á Bćjar- og bókasafninu á Selfossi í sumar. Sýningin á Selfossi var í tilefni af sumarlestri bókasafnsins. Álfheiđur fetar nú áfram veginn í heimi álfa, trölla og huldufólks.

Álfheiđur hefur fengist viđ myndlist síđastliđin 17 ár bćđi í formi grafískrar hönnunar og málverka. Hún útskrifađist frá Myndlista- og handíđaskóla Íslands 1990. Álfheiđur hefur haldiđ fjölmargar einkasýningar og áriđ 2000 gaf hún út barnabókina Grímur og Sćkýrnar. Olíumálverk úr ţeirri bók verđa einnig til sýnis á Kirkjuhvoli.

Ţjóđtrúin er sterk í Fljótshlíđinni ţar sem Álfheiđur er alin upp. Álfabrenna er árlegur viđburđur og svo má ekki gleyma nykurvatninu sem er stađsett í Fljótshlíđinni.

Barn sem elst upp viđ sögur af álfum, vćttum, sćkúm og tröllum geymir međ sér sögurnar og nýtir sér ćvintýri ţeirra sagna seinna á ćvinni.

Sýningin stendur yfir til 26. ágúst.

Sjá nánar um listaverk Álfheiđar hér: http://www.art-iceland.com/alfheidur-isl.html

Mar á Thorvaldsen Bar

Helga Sigurđardóttir sýnir á Thorvaldsen Bar frá 16. júlí - 27. ágúst. Sýningin ber heitiđ Mar.

Orkan og krafturinn frá hafinu og umhverfi ţess er drifkrafturinn í verkunum á sýningunni. Upplifun listamannsins er hann dvaldi á lítilli suđrćnni eyju koma sterklega fram í skćrum litum. Ósjálfrátt kemur ţessi lífsreynsla fram í myndunum.

Mar á Thorvaldsen Bar

Andstćđur hafsins hafa áhrif, annars vegar magnţrungnar frissandi öldur og hins vegar stemningin sem verđur ţegar sólin sindrar á spegilsléttum haffletinum. Iđandi fuglalíf í siglingu kringum Vestmannaeyjar og stökkvandi höfrungar viđ bátsstefniđ í Kyrrahafinu hefur greipst í hugann og koma fram sem ímyndir fugla og sjávardýra á myndfletinum í abstrakt formi.

Verkin eru unnin međ olíu á álplötur og olíu á striga.

Sýningin Mar stendur frá 16. júlí til 27. ágúst.

Sjá nánar hér:
www.art-iceland.com/helga-sigurdardottir-isl.html
www.art-iceland.com/mar-helga-sig-syning-art-iceland.html


Nýjar greinar á Art-Iceland.com

Risessan og risinn fađir hennar
Einu sinni var stúlka sem ólst upp međ föđur sínum, hún var góđhjörtuđ og velviljuđ, en fađir hennar var rustamenni. Ţótt ađ stúlkan vćri ung ađ árum fannst henni ađ hún ţyrfti ađ bera ábyrgđ á föđur sínum.

Mar - sýning Helgu Sigurđardóttur
Helga nefnir sýninguna Mar. Hafiđ í öllum sínum fjölbreytileika er innblástur sýningarinnar. Orkan og krafturinn frá hafinu og umhverfi ţess er drifkrafturinn í verkunum. Upplifun listamannsins er hann dvaldi á lítilli suđrćnni eyju koma sterklega fram í skćrum litum.



Listaverkalán

Ţig dreymir sjálfsagt um ađ eignast listaverk. Art-Iceland.com býđur nú hagstćđ listaverkalán til kaupa á listaverkum og auđveldar ţér ţar međ ađ eignast fallegt listaverk.

Listaverkalán er frábćr kostur sem listunnendur geta notfćrt sér. Hćgt er ađ kaupa hvers konar listaverk og listmuni sem galleríiđ býđur upp á.

Lánveitingin er í samvinnu Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar og SPRON ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum. SPRON og Reykjavíkurborg leggja fjármuni í sameiginlegan sjóđ. Ţađ fer eftir ţví hve vinsćlt er ađ nýta sér ţjónustuna hve lengi potturinn endist. Lánin eru vaxtalaus fyrir lántakendur, ţar sem SPRON og Reykjavíkurborg ásamt Art-Iceland.com og listamönnunum greiđa vextina fyrir kaupendur.

Ţessi ţjónusta er vel ţegin og vonum viđ ađ sem flestir notfćri sér ţessi góđu kjör á međan ţađ er hćgt. Viđ vitum ekki hvađ potturinn endist lengi svo vinsćl hafa lánin veriđ til ţessa.

Sjá nánar hér.



Íslensk List - Ljós og Lifandi

Skólavörđustíg 1A

562 2890 / 698 2919

Back to Back Issues Page