Augnablik á Öræfum
|
|
Sumarið 2006 fór ég fyrst um áhrifasvæði Kárahnjúkavirkjunar. Ég fór ásamt konunni minni í gönguferð með ferðafélaginu Augnabliki. Við gengum í fimm daga um Kringilsá, Kringilsárrana, Jökulsá á Brú, Hafrahvammagil, Laugarvalladal, Snæfell, Norðurdal og Jökulsá á Fljótsdal. Þetta ferðaleg breytti mér. Sjaldan eða aldrei hef ég orðið fyrir eins miklum hughrifum við að ganga um landið mitt. Vitneskjan um að mörg þessara svæða myndu annað hvort hverfa undir risavaxið lón eða þá að tilkomumiklar ár og fossar myndu þagna gerðu það að mjög sterkri upplifun. Mér fannst ég tilheyra forréttindahóp, því ég vissi að fáir landsmenn hafa borið þessi svæði augum. Ég var því ákveðinn að útbúa ljósmyndasýningu með einum eða öðrum hætti til að fleiri gætu séð landið sem mun hverfa. Þetta er 5 mínútna ljósmyndasýning með tónlist Damien Rice Öllum þeim sem vilja nýta sér myndirnar í þeim
tilgangi að vinna að verndun þessara og/eða annarra svæða sem eru í
hættu sökum virkjunaráforma er heimil notkun á þeim. Öll not í
atvinnuskyni er óheimil. Þessi ferð sannfærði mig um það að stefna stjórnvalda er kolröng. Það er ekkert sem réttlætir þá meðvituðu tortímingu á einstæðri náttúru sem á sér stað þarna fyrir austan. Við getum einfaldlega ekki leyft okkur að framkvæma slík hryðjuverk á landinu okkar, sama hvað er undir. Komandi kynslóðir eiga það skilið að fá að upplifa þessa náttúru. Þegar það kemur svo í ljós að framkvæmdin er á mjög hæpnum forsendum er það bókstaflega skylda okkar að krefjast þess að henni skuli frestað, í það minnsta á meðan rannsakað er til hlítar öll þau áhrif sem hún hefur á lífríkið, jafnt á landi sem láði.
Christopher Lund
|




