Listræn ímynd
Nýstárleg þjónusta Art-Iceland

Listræn ímynd
Art-Iceland er með umboðssölu listaverka og listsýningar fyrir
listamenn. Listavefurinn, Art-Iceland.com er kynningarvefur fyrir
myndlistamenn, þjónustvefur við viðskiptavini, að auki er hann ört
vaxandi fréttavefur um menningu og listir. Art-Iceland mun bæta
þjónustu sína við viðskiptavini með því að bjóða upp á listræna
ímynd fyrirtækja og einstaklinga.

Listræn ímynd fyrirtækja
Listræn ímynd felur í sér að setja upp myndlistasýningar í
fyrirtækjum. Í minni fyrirtækjum sérhæfir Art-Iceland sig í ráðgjöf
um val á listaverkum í anddyrum og minni móttökurýmum.
Í stærri fyrirtækjum gefur Art-Iceland góð ráð varðandi val á
listaverkum, í tengslum við stefnu fyrirtækisins í samvinnu við
framkvæmdastjóra, innanhússarkitekta og markaðsfræðinga
fyrirtækisins. Góð ímynd og falleg aðkoma inn í fyrirtæki er öflug
viðbót við aðra markaðsstefnu.
Art-Iceland sérhæfir sig í íslenskri list, úrvalið er gott,
olíumálverk, grafík, ljósmyndir og vatnslitamyndir.
Listaverk setja punktinn yfir iið svo heildarímynd fyrirtækjanna
verði skýrari.
Fyrirtæki geta einnig leigt listaverk fyrir ljósmyndatökur,
kvikmyndatökur, vefmyndatökur, bæklingagerð og auglýsingatökur. Þá
eru listaverkin leigð í stuttan tíma.
Minni fyrirtæki
Galleríið þjónustar fyrirtæki með því að breyta fundarsölum og
anddyrum fyrirtækja í notalegt umhverfi með viðeigandi myndlist.
Verkin eru leigð í þrjá mánuði, eftir þann tíma er ákveðið hvort
kaup á verkunum fara fram eða áframhaldandi leiga listaverka. Þá er
tækifæri til að skipta út listaverkum til að breyta til.
Stærri fyrirtæki
Útlit fundarsala hannaður með áhugaverðum íslenskum listaverkum.
Tillit er tekið til stefnu fyrirtækisins og hugmyndum
lykilstarfsfólks innan fyrirtækisins.
Listaverkin eru leigð í þrjá mánuði, eftir þann tíma er ákveðið
hvort kaup á listaverkunum fara fram eða áframhaldandi leiga.
Leiguprósenta er 3% af söluverði listaverkana á mánuði. Ef
fyrirtæki hafa áhuga á að gerast áskrifendur að íslenskri
myndlist, þá er það möguleiki. Þá er það framkvæmt þannig að
fyrirtækið greiðir ákveðinn kostnað, sem er 3% af heildarverði
listaverkana, svo er alltaf skipt út listaverkum með jöfnu
millibili. Samið er til sex mánaða í einu.
Áskriftarþjónustu Art-Iceland geta einnig fyrirtæki eins og
veisluþjónusta nýtt sér.
Ef um mun stærri verkefni er að ræða, þá gerir Art-Iceland
tilboð í þjónustuna.
Listræn ímynd einstaklinga
Art-Iceland býður einnig upp á
listræna ímynd fyrir einstaklinga. Þjónustan er fólgin í því að
setja upp listsýningar fyrir fermingar, afmæli, brúðkaup,
skírnarveislur og ljósmyndatökur. Þá er skammtímaleiga á
listaverkunum.

Aðalmarkmið
Aðalmarkmið Art-Iceland er að byggja upp öflugt fyrirtæki á
listaverkamarkaðinum, með því að selja íslenska list í
galleríinu Art-Iceland, á vefnum Art-Iceland.com og til
fyrirtækja og einstaklinga. Um leið er stutt við bakið á
íslenskum fyrirtækjum með sterkari heildarsýn, listin fær meiri
útbreyðslu og stuðlar að betra aðgengi til almennings en verið
hefur til þessa.

Þjónustuþættir Art-Iceland
Þjónustuþættir Art-Iceland eru í þremur þáttum.
• Galleríið Art-Iceland, þar sem viðskiptavinir geta komið í
galleríið Art-Iceland á Skólavörðustíg 1a og keypt listaverk, eftir
20 ólíka listamenn. Auk þess að koma á listsýningar á vegum
Art-Iceland.
• Vefurinn Art-Iceland.com er þjónustuvefur fyrir listamenn og fyrir
viðskiptavini, sem vilja að skoða íslenska myndlist á vefnum.
• Síðast en ekki síst, er það Listræn ímynd, sem er þjónusta við
fyrirtæki og einstaklinga. Art-Iceland þjónustar fyrirtæki á þann
hátt
að breyta fundarsölum og mótttökum í notalegt umhverfi með
viðeigandi myndlist.
Álfheiður stjórnar framkvæmd við
uppsetningu sýninga og gefur góð ráð á vali listaverka. Listaverkin
eru leigð í þrjá mánuði, eftir þann tíma býður Art-Iceland upp á að
skipta út verkum. Ef vel líkar er hægt að kaupa verkin á góðum
kjörum. Þá gengur leigan upp í kaupin. Art-Iceland býður einnig upp
á vaxtalaus lán til fyrirtækja og einstaklinga við kaup á
listaverkum.
Notalegt umhverfi þar sem samningar á milli fyrirtækja eru
undirritaðir er undirstaða góðrar samvinnu og trúnaðar seinna meir.

Nú þegar Art-Iceland fer á stað með
Listræna ímynd, mun galleríið taka hliðsjón af “feng shui”,
þar sem það á við. Feng shui er hugtak sem vísar til list-og
vísindagreinar sem fæst við að hanna umhverfið sem við lifum í.
Til þess að það náist jákvætt flæði og notalegt andrúmsloft í
umhverfinu, þá hjálpa kenningar feng shui einnig við litaval.
Litir listaverka geta einnig endurspeglað liti í lógói
fyrirtækja. Litir ýta undir það að viðskiptavinurinn muni eftir
fyrirtækinu í auglýsingaflóðinu og samkeppninni við önnur
fyrirtæki.
Listræn ímynd á líka við þegar fyrirtæki eru að auglýsa
fyrirtækið sitt á vefnum, fyrir bæklingagerð og auglýsingagerð.
Þá er ódýrara að leigja listaverk, heldur en að festa kaup á
þeim.
Art-Iceland hvetur fyrirtæki og
einskaklinga að hafa samband.
|
|