Elín G Jóhannsdóttir
Náttúra - kyrralífsmyndir

Elín G. Jóhannsdóttir vinnur með mörg þemu á sama tíma. Öll
lýsa þau ákveðnu andrúmslofti. Hún er ástríðumálari og vill breiða
út hamingju, fegurð og góðum tilfinningum til allra. Hún ferðast
mikið og safnar saman upplýsingum í huganum og á pappír og vinnur úr
þeim á vinnustofu sinni í Hafnarfirði.
Elín fær innblástur alls staðar,
þó sérstaklega af litum. Að mála er eins og að dansa fyrir
henni, flæðir áreynslulaust og eðlilega. Þegar hún gleymir sér við
vinnuna, tengist hún þessu skapandi flæði. Þegar henni tekst vel upp,
dansar höndin á striganum átakalaust. Eftir góðan dag fyrir framan
strigann eru tekin nokkur dansspor. Að vera betri í dag en í gær og
mála þannig svo lengi sem heilsan leyfir.
Meistararnir sem hafa áhrif á list hennar eru: Toulouse-
Lautrec 1864-1901, hún fór að sjá rauðu Milluna til Parísar á slóðir
Lautrec og sá þá að Millan er enn notuð fyrir kabarett. Samnefnd
kvikmynd hefur einnig frábæra sviðsmynd frá Millunni, en Lutrec
málaði þar hórurnar meðan þær biðu eftir kúnnum. Vincent van Gogh
1853-1890, Elín fór á safnið hans í Amsterdam, frábærar sjálfsmyndir
hans komu henni á óvart.
Edvard Munch 1863-1944, Munch var hennar fyrsta
listaverkaupplifun.
Safnið hans í Osló er
frábært, Egon Shiele 1890-1918, hún fór til Vínar í Austurríki að
sjá þennan frábæra teiknara, Andy Warhol 1928-1987, verk hans hafa
verið á mörgum stöðum London, Kaupmannahöfn og New York, Claude
Monet 1840-26, hún upplifði garðinn hans á heimili hans þar sem
vatnaliljuseríurnar urðu til stórkostleg upplifun, sá svo myndirnar
í New York á MoMa safninu, John Currin núlifandi listamaður hefur
ennþá aðeins séð hann í 100 Contemporary Artists og auðvitað Kjarval
og Erró í Reykjavík.
Einkasýningar:
2010, Borið á borð, Gallerí Fold, Iceland
2009, Ljósin í bænum, Menningarnótt í Reykjavík, Iceland
2005, Í blóma, Ófeigur gullsmiðja og listmunahús, Iceland
2004, Sker, Gallerí Fold, Iceland
2003, Listkynning, Rannsóknarstofnun Byggingariðnaðarins, Iceland
2002, Jakar, Kringlan, verslunar- og þjónustumiðstöð, Iceland
2001, Upp með ánni , Gallerí Fold, Iceland
2000, Sprænur, Listasalurinn Man,Iceland
1999, Gjótufólkið er komið á kreik, Listastofan Sans, Iceland
1997, Sprekker, Provisoret, Norway
1997, Gjár og gjótufólk, Gallerí Fold, Iceland
1996, Gjár, Gallerí Fold, Iceland
Samsýningar:
2005, Gullkistan, Gullkistan, Iceland
2002, Sköpun, Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn, Iceland
2000, Margt smátt, Gallerí Fold, Iceland
2000, Gjár, IS Kunst gallery og café, Norway
1999, Úr djúpinu, Ásmundarsalur, Iceland
Menntun:
2008-2009, Iceland University of Education, Reykjavík,
Iceland, framhaldsmenntun, mastersnám
1992-1996, Icelandic College of Art and Crafts, The,
Reykjavík, Iceland, málaradeild
1991-1992, Iceland University of Education, Reykjavík,
Iceland, myndlistardeild
1980-1981, Osló, Norway, framhaldsmenntun, mastersnám
1976-1979, Iceland University of Education, Reykjavík,
Iceland, Grunnmenntun í myndlistardeild
1972-1975, Junior College Secondary Grammar School,
Reykjavík, Iceland, stærðfræðideild
Society of Icelandic Visual Artists
Association of Icelandic Art Teachers
The Association of Icelandic Visual Artists
Icelandic Teachers Union
http://umm.is/UMMIS/Listamenn/Listamadur/72
|
|