Álfar og tröll
Álfheiður Ólafsdóttir

Álfheimar
Olía á
striga
Álfheiður Ólafsdóttir
Álfheiður Ólafsdóttir sýnir Álfa og tröll í tilefni af sumarlestri Bæjar-og héraðsbókasafnsins á Selfossi um álfa, huldufók og tröll. Myndirnar eru allar unnar í olíu á striga. Sýningin stendur yfir frá 4. júní til 4. ágúst. 2007.
Olíumálverk úr bókinni Grímur og sækýrnar eru einnig til sýnis á bókasafninu.

19. júní heimsótti Álfheiður álfkona
bókasafnið og sagði krökkunum sögur. Þau tóku vel
undir sögurnar og sögðu frá eigin reynslu af álfum og verum sem þau höfðu séð.

Krakkarnir voru alveg til í að heyra sögur um málverkin sem eru til sýnis í
Listagjánni.

Bjarni Harðarson sagnaþulur sagði tröllasögur sem
krakkarnir kunnu vel að meta.
Í staðinn fengum við að heyra margar skemmtilegar tröllasögur sem þau kunnu og
fannst gaman að segja frá.

Að lokum var dregið í happdrætti,
vinningahafinn er hér fyrir neðan.


Á nýársnótt
Olía á
striga
Álfheiður Ólafsdóttir
Þjóðtrúin er sterk í Fljótshlíðinni þar sem Álfheiður er alin
upp, álfabrenna er árlegur viðburður og svo má ekki gleyma
nykurvatni sem er staðsett í Fljótshlíðinni.
Barn sem elst upp við sögur af álfum, vættum, sækúm og tröllum
geymir með sér sögurnar og nýtir sér ævintýri þeirra sagna seinna á
ævinni. Álfheiður nýtir sér innsýn í álfaveröld og ævintýri í
listsköpun sinni og sýnir á bókasafninu afrakstur þeirrar vinnu sem
var sérstaklega unnin fyrir sumarlestur bókasafnsins.

Ekki er allt sem sýnist
Olía á
striga
Álfheiður Ólafsdóttir

Álfakastalinn
Olía á
striga
Álfheiður Ólafsdóttir

Fossbúinn
Olía á
striga
Álfheiður Ólafsdóttir




